Á öðrum tónleikum Föstudagsraðarinnar heyrast tvö verk eftir finnsk tónskáld. Sept Papillons eftir Saariaho og sinfónía nr. 2 eftir Sibelius. Í myndbandinu fjallar Árni Heimir Ingólfsson um verkin og nafngift tónleikanna; fiðrildi og finnskir skógar. Hljómsveitarstjóri er Osmo Vänskä, aðalgestastjórnandi SÍ.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast kl. 18 í Norðurljósum. Happy-hour á barnum á undan og eftir tónleikana. Miðaverð er 2.800 kr.